Ráðherra segir ekkert að óttast 12. apríl 2010 05:00 Ragna Árnadóttir
Engin ástæða er til að ætla annað en að lögreglumenn uppfylli skyldur sínar með prýði hér eftir sem hingað til, segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Hún var spurð um orð Snorra Magnússonar, formanns Landssambands lögreglumanna, sem sagði á föstudag í fréttum Útvarps að hann efaðist um að margir lögreglumenn gæfu kost á sér í að verja „dauða hluti", ef kæmi til mótmæla að útgefinni skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Snorri óttast „aðgerðaleysi stjórnvalda" komi til átaka og tengdi þetta við lausa kjarasamninga. Spurð um hvort búast megi við lítilli löggæslu eftir helgi og hvort það væri þá ríkisstjórninni að kenna, bendir Ragna á að Snorri hafi ítrekað í fréttinni að lögreglumenn stæðu við sitt. „Ég hafði samband við ríkislögreglustjóra í tilefni fréttarinnar og sannreyndi að það stæði ekkert upp á dómsmálaráðuneyti eða lögreglulið hvað löggæslu varðar," segir ráðherrann í skeyti. Stefán Eiríksson lögreglustjóri vill ekki ræða ummæli Snorra. Snorri verði að bera ábyrgð á þeim sjálfur. - kóþ
Mest lesið Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Erlent Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Innlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Píratar taka upp formannsembætti Innlent „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Innlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Sjá meira