Innlent

Hvetja til fuglaskoðunar

Meðal fugla sem finna má í íslenskum görðum er auðnutittlingur. mynd/Örn Óskarsson
Meðal fugla sem finna má í íslenskum görðum er auðnutittlingur. mynd/Örn Óskarsson

Fuglavernd hvetur landsmenn til að skoða og skrá fjölda og tegundir fugla í görðum um næstu helgi, frá föstudegi til sunnudags, einn klukkutíma í senn. Þá er átt við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

Áhugasömum er bent á að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa þeim daglega til að lokka að fugla.

Markmiðið er að afla upplýsinga um og vekja áhuga á fuglum og töfrum þeirra.

Upplýsingar um fóðrun garðfugla er hægt að finna á vef Fuglaverndar www.fuglavernd.is og á Garðfuglavefnum www.fsu.is/~ornosk/gardfuglar/. Á Garðfuglavefnum geta þátttakendur einnig skráð niðurstöður sínar og sent þær inn rafrænt.- sbt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×