Innlent

Flugumferðastjórar setjast við samningaborðið

Frá samningafundi flugumferðarstjóra í gær.
Frá samningafundi flugumferðarstjóra í gær.

Flugumferðastjórar auk viðsemjanda, sem eru Flugstoðir og Keflavíkurflugvöllur, hittast hjá Ríkissáttasemjara klukkan hálf tvö í dag. Til stóð að setja lögbann á verkfall flugumferðarstjóra í gær en til þess kom ekki þar sem verkfallinu var aflýst og lýst var yfir vilja til þess að semja.

Samkvæmt fréttastofu RÚV þá ber verulega í milli en flugumferðastjórar krefjast sömu kjarabóta og flugmenn hafi fengið, það er 6 prósent launahækkunar. Samkvæmt heimildum RÚV hefur þeim hins vegar verið boðin lítil sem engin launahækkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×