Þingmenn sýni meiri ábyrgð í störfum sínum 26. mars 2010 17:22 Guðmundur Gunnarsson, formaður RSÍ.
Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands átelur harðlega það ábyrgðarleysi sem stjórnmálamenn hafa sýnt undanfarið ár með þeim vinnubrögðum sem þeir hafa viðhaft. Alvarlegt ástand efnahags- og atvinnumála fari enn versnandi. „Atvinnuleysi hefur aldrei mælst hærra og er að nálgast 20 þús. manns, þrátt fyrir að margir hafi horfið af vinnumarkaði og farið erlendis eða í nám. Allt bendir til að atvinnuleysi muni enn aukast, ef ekki verði gripið til öflugra varna. Leysa verður Icesave-deiluna og aðra óvissuþætti. Nýjar hagspár gera ráð fyrir of litlum hagvexti til þess að nógu mörg störf skapist til að það dragi úr atvinnuleysinu," segir í ályktun sem samþykkt var á fundi miðstjórnar í dag. Miðstjórn RSÍ krefst þess að alþingismenn sýni meiri ábyrgð í störfum sínum og taki höndum saman um endurreisn efnahagskerfisins og setji hagsmuni þjóðarinnar í forgang. Alþingi verði að vinna traust þjóðarinnar á ný og taka upp ábyrg vinnubrögð. Nóg é komið af hráskinnaleik stjórnmálamanna. Miðstjórnin krefst þess að ríkisstjórnarflokkar og stjórnarandstaða snúi bökum saman. „Sveitafélög stöðva hvert verkefnið á fætur öðru með seinagangi og láta deiliskipulag standa í vegi framkvæmda, sem þegar eru á borðinu eins og mörg dæmi eru um. Þar má t.d. nefna ráðaleysi borgarstjórnar Reykjavíkur og stendur með því í vegi fyrir miklum byggingarframkvæmdum, eins og t.d. uppbyggingu stúdentagarða, sem eru fullfjármagnaðir og hafa verið tilbúnir til framkvæmda um nokkurt skeið," segir í ályktun miðstjórnarinnar.
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar Erlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent Fleiri fréttir Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Sjá meira