Innlent

Stefnir í harðann prófkjörsslag í Kópavogi

Kópavogur.
Kópavogur.

Bæjarstjóri Kópavogs, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og bæjarfulltrúi flokksins hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingu þar sem þau segjast styðja Ármann Kr. Ólafsson til forystu í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem verður haldið 20. febrúar.

Í yfirlýsingunni, sem var send öllum fjölmiðlum, segja þau Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri, Ragnheiður K. Guðmundsdóttir, varabæjarfulltrúi og Sigurrós Þorgrímsdóttir bæjarfulltrúi að þau treysti Ármanni til forystunnar.

Svo virðist sem það stefni í mikla baráttu í prófkjörinu því Gunnar Birgisson, fyrrum bæjarstjóri, sækist einnig eftir fyrsta sætinu. Hann vék þó úr sæti bæjarstjóra á meðan ásakanir á hendur honum voru rannsakaðar vegna viðskipta bæjarfélagsins við fyrirtæki dóttur hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×