Vonandi tækifæri til að gefa okkur klapp á bakið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. janúar 2010 06:00 Ívar Ingimarsson í leik með Reading. Nordic Photos / Getty Images
Fjölmargir leikir fara fram í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í dag. Íslendingaliðið Reading mætir Liverpool á heimavelli sínum klukkan 17.15 og má búast við því að þrír Íslendingar verði í eldlínunni: Ívar Ingimarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Brynjar Björn Gunnarsson. Sá fjórði, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, samdi við Reading í vikunni en fær ekki keppnisleyfi fyrr en eftir helgi. „Það er hið besta mál að fá Gunnar, hann mun vonandi reynast okkur góður liðsstyrkur og ná sér vel á strik," sagði Ívar við Fréttablaðið. „Okkur veitir alls ekki af því að skora fleiri mörk." Gengi Reading á leiktíðinni hefur verið langt undir væntingum. Liðið er í 20. sæti ensku B-deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá fallsæti. Ívar segir það því kærkomið að fá stórlið eins og Liverpool í heimsókn í bikarkeppninni. „Það verður örugglega fullur völlur, mikil stemning og eftirvænting hjá stuðningsmönnum. Það vilja allir sjá leikmenn eins og Gerrard og Torres og verður líka gaman fyrir leikmenn að fá að spreyta sig gegn þeim," segir Ívar. „Við höfum átt nokkuð erfitt í deildinni og vonandi brýtur það aðeins mynstrið að fá núna stóran bikarleik og vonandi getum við notað hann til að gefa okkur klapp á bakið fyrir síðari hluta tímabilsins." Ívar segir þó að liðið eigi ekki meira skilið en liðið hefur fengið hingað til á tímabilinu. „Ekki eins og staðan er núna. Við höfum nú spilað 23 leiki og það er ekki alltaf hægt að vera óheppinn. Hluti af fótbolta er að nýta færin sín og það höfum við ekki gert vel. Við erum í þeirri stöðu sem við erum og það er engin tilviljun. Hins vegar er ég sannfærður um að við munum fara hratt upp stigatöfluna ef við förum að spila saman sem lið og gera færri einstaklingsmistök." Liverpool hefur ekki heldur þótt standa undir væntingum en þykir þó talsvert sigurstranglegri aðilinn í leiknum. „En það er sama hver andstæðingurinn er - mér finnst aldrei gaman að skíttapa leikjum. Við munum leggja okkur alla fram í leiknum og vonandi dugar það til að ná góðum úrslitum."
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Fleiri fréttir Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Sjá meira