Innlent

Haförninn í tveggja tíma aðgerð

Haförninn í Húsdýragarðinum var fluttur á Dýraspítalann í Víðidal í Reykjavík í dag og lagður á skurðarborð. Örninn hefur lítil batamerki sýnt frá því hann fannst illa haldinn við Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi í haust og hefur enn ekki náð að blaka vængjunum eðlilega.





Til að kanna hvað væri að var tekin röntgenmynd af stóru graftrarkýli í vængnum og fuglinn síðan skorinn upp. Skurðaðgerðin tók á aðra klukkustund en batahorfur eru óvissar.

Sýnt verður frá skurðaðgerðinni á erninum í fréttum Stöðvar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×