Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Kristján Már Unnarsson skrifar 10. september 2010 17:00
Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. Við hefjum nú fréttaröð um hina umdeildu Norðlingaölduveitu, en friðunarsinnar segja svæðið sem raskast hluta af einstakri landslagsheild, meðan fylgjendur framkvæmda segja rangt að skilgreina það sem hluta Þjórsárvera. Þjórsárver eru stærsta gróna svæðið á miðhálendi Íslands og lykilsvæði fyrir heiðagæs, segir Gísli Már Gíslason, prófessor og formaður Þjórsárveranefndar, einn helsti talsmaður þess að stækka friðlandið. Hann segir að þetta, ásamt þeirri landslagsheild, með Kerlingarfjöll og jökulinn í baksýn, og gróið svæði, á annað hundrað ferkílómetra, ásamt söndunum, - það sé ekkert annað svæði á norðurhveli jarðar sem jafnist á við þetta. Landsvirkjun vill stífla Þjórsá hér á þessum stað, um átta kílómetrum neðan friðlands Þjórsárvera, og dæla vatninu um jarðgöng í átt til Þórisvatns, með fimmtán milljarða króna framkvæmd. Tekjurnar eru áætlaðar tveir til tveir og hálfur milljarður króna á ári vegna aukinnar raforkuframleiðslu í fjórum virkjunum. Áður hafði Skipulagstofnun fyrir átta árum samþykkt Norðlingaöldulón sem næði inn í neðsta hluta Þjórsárvera en ráðherraúrskurður minnkaði lónið verulega og færði það út úr friðlandinu. Nú vill ríkisstjórnin undir forystu umhverfisráðherra stækka friðlandið þannig að það nái yfir lónið. Gísli Már segir að Þjórsárver séu miklu stærra svæði en friðlandsmörkin segi til um. Þau hafi bara verið dregin árið 1981 á milli hæða sem sáust vel á herforingjaráðskorti. Stór svæði utan Þjórsárvera hafi verið skilin eftir utan við friðlandsmörkin. Fáir hafa komið oftar á þetta svæði en bóndinn á Ásólfsstöðum í Þjórsárdal, Sigurður Páll Ásólfsson. Bæði hefur hann smalað Þjórsárverin frá unga aldri en einnig farið þangað reglulega vegna vatnamælinga fyrir Landsvirkjun. Það er einmitt um þetta sem deilt er um, hvort rétt sé að tala um Norðlingaöldu sem hluta af Þjórsárverum. "Það er bara rangt. Það er ekki staðreynd," segir Sigurður Páll, og bætir við að í hans huga og sveitunga hans séu Þjórsárver miklu ofar. Í raun séu hin eiginlegu og fallegu Þjórsárver fyrir innan Bólstað, gegnt Sóleyjarhöfða. Samvinnunefnd miðhálendis lýsti því yfir fyrir tveimur árum að umhverfisáhrif Norðlingaölduveitu í núverandi mynd yrðu hverfandi. Með því að slá hana af væri grænum og góðum virkjunarkosti varpað fyrir róða. Gunnar Örn Marteinsson, oddviti Skeiða og Gnúpverjahrepps, tekur undir þau sjónarmið að veitan raski ekki Þjórsárverum, og segir að út frá friðunarsjónarmiði Þjórsárvera skipti Norðlingaölduveita ekki máli í þeirri myndi sem hún sé orðin núna. Þetta sé orðin miklu minni framkvæmd og miklu minni umhverfisáhrif en áður var talað um.
Tengdar fréttir Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi. 10. september 2010 17:00 Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. 10. september 2010 17:00 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira
Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi. 10. september 2010 17:00
Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. 10. september 2010 17:00