Níu Fáfnisliðar krefja ríkið um skaðabætur 31. mars 2010 06:00 Það var í húsinu lengst til hægri á myndinni sem mennirnir voru handteknir. Félagsheimilið hefur nú verið flutt í Hafnarfjörð. Fréttablaðið/rósa
Níu núverandi og fyrrverandi félagar í vélhjólaklúbbnum Fáfni hafa stefnt ríkinu til greiðslu skaðabóta vegna ólögmætrar handtöku. Sjö þeirra krefjast 600 þúsund króna í bætur og tveir krefjast einnar milljónar. Alls voru tíu Fáfnisliðar handteknir í félagsmiðstöð klúbbsins við Frakkastíg að kvöldi 4. júlí 2007. Lögregla taldi ljóst að gengið hefði verið í skrokk á manni í húsinu og að vopnum hefði verið beitt – skiptilykli, járnstöng og öðrum verkfærum. Hinn slasaði var félagsmaður á leið úr Fáfni og mun hafa verið á staðnum til að skila búnaði merktum klúbbnum. Á meðal hinna handteknu voru Einar Marteinsson, núverandi formaður klúbbsins, og Jón Trausti Lúthersson, fyrrverandi formaður. Átta hinna handteknu var haldið í fangelsi í tæpan sólarhring. Einar og annar maður voru taldir hafa staðið einir að árásinni og sátu þeir í gæsluvarðhaldi í eina viku. Lögregla felldi málið síðan formlega niður í maí í fyrra. Einn mannanna hefur þegar fengið dæmdar bætur vegna handtökunnar. Honum var haldið í nítján tíma eftir handtökuna, jafnvel þótt þolandi árásarinnar hefði strax greint lögreglu frá því hverjir hefðu ráðist á hann. Komst dómurinn að því að handtakan hefði verið óþörf og ólögmæt og manninum dæmdar 100 þúsund krónur í bætur, einn tíunda af þeirri milljón sem hann fór fram á. Hinir níu fylgja nú í kjölfarið. Einar og sá sem sætti gæsluvarðhaldi með honum krefjast milljónar en hinir 600 þúsund króna. Sá sem þegar hefur fengið bætur fékk gjafsókn til að reka málið. Gjafsóknarnefnd hafnaði hins vegar umsóknum hinna með þeim rökum að málin væru fyrnd, enda væru meira en sex mánuðir síðan þeim var tilkynnt bréfleiðis um að málið hefði verið fellt niður. Þeir kannast hins vegar ekki við að hafa fengið slíkt bréf og má því búast við því að tekist verði á um þetta atriði fyrir dómi. Sjö málanna verða tekin fyrir í héraðsdómi á þriðjudaginn kemur, málflutningur í einu málanna er yfirstaðinn og málflutningur í máli Einars er á dagskrá í september. - sh Einar marteinsson
Mest lesið „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Fyrirgefur morðingjanum Erlent ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Innlent Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Innlent Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Innlent Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Innlent Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Innlent „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Fleiri fréttir „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Sjá meira