Tunglmyrkvinn er búinn 21. desember 2010 07:43 MYND/Vefmyndavél Mílu
Tunglmyrkvi var í morgun og sást hann greinilega á höfuðborgarsvæðinu . Almyrkvinn hófst klukkan 7:40 og stóð yfir til klukkan 8:54. Tunglið er því farið að gægjast út úr skugganum á nýjan leik. Tunglmyrkvann ber upp á vetrarsólstöður, stysta dag ársins og sést hann í Norður-Ameríku, Mið-Ameríku, hluta Suður-Ameríku, á Grænlandi og Íslandi. Seinast sást almyrkvi frá Íslandi aðfaranótt 21. febrúar 2008. Afarsjaldgæft er að almyrkva á tungli beri upp á sama dag og vetrarsólstöður eins og í dag en á vetrarsólstöðum er sólin lægst á himni á norðurhveli jarðar. Þetta gerðist síðast fyrir 456 árum síðan eða árið 1554, samkvæmt upplýsingum frá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna. Erlendir fjölmiðlar hafa rifjað upp í tilefni dagsins hvað gerðist árið 1554 en það var fátt markvert. Einna helst að Lady Jane Gray var hálshöggvin fyrir föðrulandssvik en hún hafði ríkt sem drottning Breta í níu daga árið áður. Hér á Íslandi gerðust tveir atburðir sem teljast markverðir. Annar var að klausturhald var lagt formlega og endanlega niður hér á landi 1554. Eftir það skipaði Danakonungur sérstaka umboðsmenn yfir rekstur eigna klaustranna. Hinn er að eldgos varð við Vondubjalla um 10 km suðvestur af Heklu. Gosið stóð í 6 vikur og myndaði Rauðubjalla en frá eldstöðinni rann það sem kallað er Pálssteinshraun. Fréttablaðið og Vísir efna til samkeppni um bestu myndina af tunglmyrkvanum sem nú stendur yfir. Í fyrstu verðlaun er glæsileg Sony NEX myndavél og leikhúsmiðar í önnur og þriðju verðlaun. Myndunum skal skila inn á netfangið ljósmyndakeppni@frettabladid.is fyrir klukkan 15 í dag. Vinningsmyndin verður birt bæði í Fréttablaðinu á morgun og á Vísi ásamt fleiri myndum sem dómnefnd telur athyglisverðar. Á vefmyndavél Mílu má fylgjast með myrkvanum í beinni útsendingu.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira