Fífldjarfir ræningjar fyrir rétti Óli Tynes skrifar 9. ágúst 2010 18:15
Tíu karlmenn sem nú eru fyrir rétti í Stokkhólmi neita allir að hafa tekið þátt í einhverju bíræfnasta ráni sem þar hefur verið framið. Lögreglan þykist þó hafa næg sönnunargögn undir höndum, meðal annars DNA sýni. Lögreglan hefur einnig myndband úr öryggismyndavélum sem sýna ræningjana á vettvangi.Hvað sem annars má um ræningjana segja var ránið þaulskipulagt. Það var í september árið 2009 sem þrír svartklæddir menn komu þjótandi á þyrlu og brutu sér leið inn í peningageymsluí Stokkhólmi í gegnum þakið.Þeir höfðu með sér sprengiefni, stiga, vélsagir, slípirokka og glussaklippur.Skelfingu lostið starfsfólkið leitaði sér skjóls í öryggisherbergi og hélt fyrir eyrun meðan sprengingarnar skóku húsið.Ræningjarnir komust nokkuð auðveldlega inn í peningageymsluna og byrjuðu að hlaða seðlabúntum um borð í þyrluna.Þeir stálu næstum 40 milljónum sænskra króna sem gerir um 660 milljónir íslenskra króna. Síðan forðuðu þeir sér í þyrlunni.Lögreglan gat ekki notað sínar eigin þyrlur til þess að helta hana því pökkum sem litu út eins og sprengiefni hafði verið komið fyrir á þyrlupalli hennar.Ræningjarnir komust því undan, en hafa síðan verið handteknir einn af öðrum. Það er að segja ef þeir tíu sem eru fyrir rétti eru sekir um ránið.Ránsfengurinn hefur ekki fundist ennþá og lögreglan telur að enn gangi vitorðsmenn lausir.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira