Ekki til marks um fjölgun smita 9. ágúst 2010 13:07 Haraldur Briem. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Á síðasta ári greindust 13 manns með HIV veiruna, en ekki hafa fleiri greinst á einu ári síðan 1985 þegar 16 greindust. Ekki stefnir í fjölgun smita það sem af er árinu 2010, en sóttvarnalæknir segir toppinn á síðasta ári ekki til marks um fjölgun smita. Það sem af er á árinu 2010 hafa fimm greinst með HIV veiruna. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir að heilt á litið bendi tölurnar ekki til þess að smitum sé að fjölga marktækt og raunar sé um að ræða lítilsháttar fækkun miðað við höfðatölu á síðasta ári frá árinu 2007, en þá greindust einnig þrettán með sjúkdóminn. „Ég myndi meta þetta sem svo að þetta væri býsna stöðugt. Það sem skýrir frekar háar tölur bæði 2007 og 2009 er að þá greindust óvenjumargir sem að misnotuðu fíkniefni með sprautum og nálum. Það er auðvitað í sjálfu sér áhyggjuefni en að öðru leyti myndi ég segja að þetta væri mjög svipað frá ári til árs,“ segir Haraldur. Í hópnum sem greindist í fyrra voru um fimm smit sem rekja má til fíkniefnaneyslu með sprautunálum. Enginn hinna smituðu fengu sjúkdóminn eftir mök við eigið kyn. Fyrstu árin eftir að mælingar hófust árið 1983 voru samkynhneigðir karlmenn í meirihluta smitaðra og eru raunar um 43% þeirra sem greinst hafa frá upphafi, en hlutur þeirra fer minnkandi. Í farsóttatíðindum er greint frá því að átta hinna smituðu hafi verið af erlendu bergi brotin og smitast vegna kynmaka. „Þannig hefur þetta verið í gegnum tíðina að fólk sem er að flytjast til landsins frá svæðum þar sem HIV-smit er mjög útbreitt. Við finnum þetta hjá þeim í einhverju hlutfalli og það skýrir þessar tölur líka. Meðal innfæddra Íslendinga er þetta sem betur fer frekar fátítt,“ segir Haraldur.
Tengdar fréttir Flest tilfelli af HIV í 25 ár Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins. 9. ágúst 2010 05:00 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Sjá meira
Flest tilfelli af HIV í 25 ár Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins. 9. ágúst 2010 05:00