Talibanar bjóða lík fyrir fanga 26. júlí 2010 05:00 Talibanar segjast vera með bandarísku hermennina í sínu haldi en yfirvöld á svæðinu vilja ekki gefa neitt út á það. Fréttablaðið/afp
Talibanar í Afganistan segjast hafa fellt bandarískan hermann og séu með annan í haldi. Hermannanna tveggja hefur verið saknað síðan á föstudag. Talibanar gáfu út yfirlýsingu í gær um þeir hefðu fellt annan í skotárás en að hinn væri á lífi í haldi þeirra. Yfirvöld Nató og Bandaríkjahers í Afganistan staðfesta að mennirnir séu týndir en verjast að öðru leyti frétta. Víðfeðm leit hefur staðið yfir um helgina en mennirnir fóru frá bandarísku herstöðinni í Kabúl án þess að láta neinn vita, sem er óvanalegt á þessu hættulega svæði. Síðast sást til mannanna á jeppa akandi inn á yfirráðasvæði talibana. Í yfirlýsingu talibana segir að hermennirnir hafi hafið skothríð sem talibanar hafi svarað og fellt annan hermanninn en tekið hinn höndum. Hafa þeir boðið lík þess látna í skiptum fyrir fanga úr sínum röðum, sem eru í haldi hjá Bandaríkjamönnum. Ekki er vitað hvað hermönnunum gekk til að fara sjálfviljugir inn á yfirráðasvæði talibana en talsmenn Nató og Bandaríkjahers neita að tjá sig frekar. - áp
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Fleiri fréttir Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Sjá meira