Keyra á Þeistareyki og Búðarháls af stað 6. apríl 2010 06:45 Iðnaðarráðherra segir að á næstunni muni skapast stórt orkuöflunarsvæði á Þeistareykjum og í kringum það verði mikil atvinnuuppbygging. mynd/völundur jónsson
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að menn gleymi gjarnan þeim uppbyggingaráformum sem fyrirhuguð eru við Þeistareyki. Þar ætli stjórnvöld sér mikla hluti. Hún segir Icesave hafa verið til trafala þegar kemur að fjármögnun. „Við erum að vinna mjög markvisst að því að orkan, sem blæs upp á Þeistareykjum, komist í kerfið sem allra, allra fyrst. Menn gleyma því oft þegar þeir eru að leggja mat á það sem leiðir af stóriðjunni og hafa skilið það svæði eftir. Það er alveg ljóst að stjórnvöld leggja mikla áherslu á það svæði. Þar verður mjög stórt orkuöflunar- og atvinnuuppbyggingarsvæði á næstunni.“ Fréttablaðið birti í síðustu viku útreikninga frá hagdeild Alþýðusambands Íslands, þar sem upplýst var að ef töf verður á framkvæmdum við álver í Helguvík og endurnýjun vélabúnaðar í Straumsvík um eitt ár, minnkar landsframleiðsla næstu þriggja ára um 50 milljarða. Katrín segir að það að hafa ekki gengið frá samningum um Icesave hafi flækst fyrir þegar kemur að fjáröflun. „Icesave-málið hefur verið okkur til trafala, það er ekkert leyndarmál. Ég finn þetta ekki bara í hugsanlegum fjárfestingum í orkugeiranum, en þar hefur það verið sérstaklega slæmt. Forsvarsmenn orkufyrirtækjanna hafa sagt frá því að erfitt sé um fjármögnun og einn þeirra, forstjóri Landsvirkjunar, hefur sagt að það sé beinlínis út af þessu.“ Katrín segir það því ekki koma á óvart að kostnaður hljótist af því að ganga ekki frá Icesave. Ráðherra segir margt í gangi hjá stjórnvöldum; reynt sé að semja um Icesave, unnið sé að stóriðjumálum og einnig sé horft til annarra þátta. „Það eru til dæmis að verða til hundruð starfa í sprota- og nýsköpunarsamfélaginu. Við höfum verið að breyta lögum til að örva nýfjárfestingar hjá fyrirtækjum.“ Katrín segir að þótt erfiðara sé um vik með fjármögnun séu ýmis verkefni í gangi. Auk Þeistareykja nefnir hún Búðarhálsvirkjun, en jarðvegsframkvæmdir fari af stað þar í sumar. Horfa verði til margra þátta. „Heimurinn er ekki bara svarthvítur, við erum að vinna á mörgum vígstöðvum að því að byggja upp atvinnu og erum líka að reyna að leysa þetta Icesave-mál þannig að fjármögnunarvandinn verði úr sögunni.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira