Innlent

Fimm milljóna sjúkrahússreikningur gæti fallið á foreldra lítillar stúlku

Karen Kjartansdóttir skrifar
Fimm milljón króna reikningur Sjúktatrygginga Íslands er í vanskilum við Barnaspítalann í Boston, vegna langveikrar íslenskrar stúlku. Foreldrar hennar óttast að reikningurinn falli á sig.

Ágreiningur hefur verið milli sérfræðinga við barnaspítalann í Boston og íslenskra lækna um meðferð tveggja langveikra íslenskra telpna. Sérfræðingur frá Harvard háskóla sagði í fréttum okkar í gær undrast ákvarðanir íslenskra lækna. Foreldrar telpnanna hafa staðið straum af stórum hluta lækniskostnaði vestanhafs.

Þó eru dæmi um að Sjúkratryggingar Íslands hafi ætlað að taka þátt í kostnaði. Ytra eyra vantar á aðra telpuna.

Íslenskir læknar vildu setja skrúfu í höfuð hennar sem heyrnatæki er svo tengt við. Bandarískir læknar vildu hins vegar gera eyrnagöng og lögðust gegn hugmynd íslensku læknanna líkt og fram kemur í þessum bréfum frá læknum í Boston.

Á þau rök féllust íslenskir læknar hins vegar ekki. Sjúkratryggingar Íslands samþykkti að greiða fyrir þá aðgerði sem íslensku læknarnir vildu.

Nú fjórum mánuðum síðar virðist sem ekki hafi enn verið greitt fyrir aðgerðina.

Hildur Arnardóttir, móðir stúlknanna, segir lækna þar ytra hafa afhent sér reikninga upp á fimm milljónir króna í síðustu viku. Þá var hún í Boston vegna mikillar sýkingar sem hafði komið upp við skrúfuna sem sett var í höfuð barnsins en stúlkan en nú á sýklalyfjakúr vegna þessa.

Þau svör fengust hjá Sjúkratryggingum Íslands að ekki væri hægt að tjá sig um einstök mál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×