Lyfjaverð frumlyfja á Íslandi undir meðaltali Norðurlandanna 30. september 2010 17:47
Samkvæmt nýjustu verðkönnun Lyfjagreiðslunefndar sem birt var í dag 30. september, kemur fram að meðalverð 40 veltuhæstu lyfjanna (miðað við sömu lyf og voru veltuhæst í síðustu lyfjakönnun) er lægra á Íslandi en meðaltal á Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Ef litið er á heildsöluverð lyfjakörfunnar sem Lyfjagreiðslunefnd skoðar þá kemur í ljós að lyf, að teknu tilliti til virðisauka, eru ódýrust í Finnlandi en svo raðast löndin eftir því sem þau eru dýrari í eftirfarandi röð, Noregur, Ísland, Svíþjóð og Danmörk. Með tilliti til smásölu er lyfjakarfan ódýrust í Noregi, svo Svíþjóð, Íslandi, Finnlandi og loks rekur Danmörk aftur lestina þar sem lyf eru einnig dýrust í smásölu. Afar ánægjulegt er að sjá útkomu nauðsynlegra frumlyfja í körfunni sem á heildina litið koma vel út. Ef verðkarfan er skoðuð sést að smásöluverð 36 lyfjanna, þau lyf sem verð finnst fyrir í öllum samanburðarlöndunum, er í Finnlandi kr. 867.545, Danmörku kr. 904.050, Íslandi kr. 798.990, Noregi kr. 766.870, og Svíþjóð kr. 788.563. Meðaltal körfunnar í Finnlandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð er því kr. 814.618 samanborið við kr. 798.990 á Íslandi. Gengisþróun íslensku krónunnar hefur bein áhrif á lyfjaverð Í fréttatilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands þann 23. júní kom fram að verðlag hafi ekki lækkað þrátt fyrir styrkingu krónunnar. Ljóst er að það á ekki við hvað lyf varðar. Á þeim tímapunkti höfðu lyf ennfremur lækkað um 15% miðað við verðkönnun Lyfjagreiðslunefndar í febrúar 2010 samanborið við júlí 2011. Sterkara gengi skilar sér í lyfjaverði og má gera ráð fyrir að það hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað heilbrigðiskerfisins hvað lyf varðar sbr. fréttir af lyfjakostnaði Landspítalans frá 24. September. Í þeirri frétt var reyndar talað um að nýjar áherslur í lyfjamálum hafi skilað þessum árangri. Í ljósi framangreinds má sjá að lyfjaverð á Íslandi er síst óhagstætt og verðmyndun, í það minnsta hvað frumlyf varðar, er gagnsæ og skýr. Samkvæmt 4. gr. reglugerðar 213/2005 um Lyfjagreiðslunefnd segir að til að ná markmiðum lyfjalaga um að halda lyfjakostnaði í lágmarki skal lyfjagreiðslunefnd sjá til þess að lyfjaverð hér á landi sé að jafnaði sambærilegt við verð í viðmiðunarlöndum á Evrópska efnahagssvæðinu, sem eru Danmörk, Finnlandi, Noregur og Svíþjóð. Langflest lyf í lyfjakörfunni uppfylla þessi skilyrði þó athygli veki að tvö lyf standi áberandi upp úr.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira