Innlent

Ákærður fyrir að berja mann með grjóthnullungi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mynd/ Pjetur.
Mynd/ Pjetur.
Karlmaður á 22. aldursári hefur verið ákærður fyrir berja annan mann ítrekað með grjóthnullungi í bak, á hnakka og í andlit á Ísafirði þann 1. ágúst í fyrra. Sá sem varð fyrir árásinni vankaðist, hlaut skurð á enni og frekari meiðsl.

Þá er árásarmaðurinn einnig ákærður fyrir að ráðast á annan mann þann 9. janúar síðastliðinn á Fagranesbryggju. Hann dró manninn svo út úr kyrrstæðri bifreið þannig að hann lenti með höfuðið á jörðinni og vankaðist.

Ákæran gegn manninum verður þingfest í Héraðsdómi Vestfjarða í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×