Vinnueftirlitið og Vinnumálastofnun sameinast 22. mars 2010 11:18 Frá fundinum í morgun.
Stefnt er að því að Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun sameinist um næstu áramót í nýja og öfluga vinnumarkaðsstofnun. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnti áformaða sameiningu á fundi með starfsfólki stofnananna tveggja í morgun. Áformað er að frumvarp um Vinnumarkaðsstofnun verði að lögum á vorþingi 2010 og að þá verði auglýst eftir forstjóra hennar sem taki til starfa eins fljótt og auðið er. Miðað er við að formleg sameining stofnananna taki gildi 1. janúar 2011 og að starfsemi höfuðstöðvanna verði komin í eitt húsnæði á fyrri hluta ársins. Öllum starfsmönnum Vinnumálastofnunar og Vinnueftirlits ríkisins verður boðið starf hjá hinni nýju stofnun og fær forstjóri heimild í lögum til þess að ráða þá án auglýsingar. Alls eru starfsmenn þessara stofnana um 210 talsins, 70 hjá Vinnueftirlitinu og 140 hjá Vinnumálastofnun. Undirbúningur að sameiningunni hefur staðið yfir um nokkurt skeið og verður frumvarp til laga um nýja Vinnumarkaðsstofnun lagt fyrir Alþingi á næstu dögum. Þess er vænst að með sameiningu stofnananna tveggja fáist betri heildarsýn yfir verkefni þeirra sem öll varða aðstæður á vinnumarkaði á ýmsan hátt. Nýju stofnuninni er jafnframt ætlað að gegna lykilhlutverki við skipulagningu og uppbyggingu starfsendurhæfingar um allt land. Gert er ráð fyrir að með þessu móti náist umtalsverð hagræðing í rekstri þar sem dregið verður úr yfirbyggingu, stoðþjónusta samnýtt og þjónustustöðvar sem staðsettar eru vítt og breitt um landið sameinaðar í eina þjónustustöð vinnumarkaðsmála á hverjum stað.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira