Erlent

Fyrrum forseti Mexíkó vill gera fíkniefni lögleg í landinu

Vicente Fox fyrrum forseti Mexíkó hvetur nú til þess að fíkniefni verði gerð lögleg í landinu. Þetta sé eina leiðin til að draga úr þeim blóðugu átökum sem geysað hafa milli fíkniefnagengja í landinu og til að draga úr völdum þeirra og áhrifum.

Núverandi forseti Mexíkó Felipe Calderon hefur kallað eftir umræðu um lögleiðingu fíkniefna í landinu.

Fox fjallar um málið á bloggi sínu og segir þar að hann telji lögleiðingu fíkniefna ekki af hinu góða en að átök fíkniefnagengjanna hafi kostað Mexíkó gífurlegar fjárhæðir og fjölda látinna.

Talið er að 28 þúsund manns hafi farist í átökum um fíkniefnamarkaðinn í Mexíkó á síðustu tveimur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×