Dóttir Sophiu Hansen bar vitni á tyrknesku 2. febrúar 2010 10:53 Rúna og Dagbjört þegar þær voru litlar stelpur. Í dag tala þær ekki íslensku.
Dóttir Sophiu Hansen, Rúna Hansen, bar vitni símleiðis í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en móðir hennar, Sophia, hefur verið ákærð fyrir að bera Sigurð Pétur Harðarson röngum sökum. Deilt er um undirskrift á þremur viðskiptabréfum sem Sophia taldi nafn sitt falsað á. Fól hún lögfræðingi sínum að kæra málið til lögreglu árið 2007. Í vitnaskýrslu hjá lögreglunni lýsti hún því yfir að hana grunaði að Sigurður Pétur hefði falsað nafnið hennar sem á að hafa leitt til þess að hann var ranglega sakaður um skjalafals. Samtals nam upphæð viðskiptabréfanna rétt rúmum 42 milljónum króna. Hann var hinsvegar hreinsaður sökum þar sem rannsókna sænskra rithandasérfræðinga leiddi í ljós að sennilega skrifaði Sophia sjálf undir viðskiptabréfin. Þess vegna var Rúna kölluð fyrir dómstól í dag en hún er skráður sem vottur á bréfunum. Sjálf neitaði Rúna því að hún væri vottur á bréfunum en framburður hennar fór allur fram á tyrknesku þar sem hún talar ekki íslensku. Sjálf hefur hún ekki komið til Íslands í tuttugu ár eftir að faðir hennar Halim Al nam hana og systur hennar Dagbjörtu á brott snemma á tíunda áratugnum. Sigurður Pétur bar einnig vitni í héraðsdómi í morgun. Hann sagðist hafa hitt Rúnu og eiginmann hennar auk barna í Tyrklandi árið 2005 með Sophiu. Hefðu þau öll farið út að borða saman en í sömu ferð á Rúna að hafa undirritað bréfin sem vottur. Sjálf neitaði Rúna þessu og sagðist ekki hafa hitt Sigurð Pétur síðan hún var lítil stúlka. Í dag er Rúna rétt tæplega þrítug. Rithandasérfræðingur var einnig kallaður fyrir dómara. Hann sagði að það væri meira en líklegt að Sophia hefði skrifað sjálf undir bréfin. Mælikvarðinn eru fjögur stig í plús eftir því sem það þykir líklegra að rithöndin sé viðkomandi og svo fjögur stig í mínus eftir því sem það þykir ólíklegra að viðkomandi eigi rithöndina. Rithandasérfræðingur sagði að líkurnar á því að undirskriftin væri Sophiu væru plús þrír. Aðalmeðferð málsins heldur áfram í dag. Síðan verður málið lagt fyrir dóm og má búast við dómsuppsögu innan þriggja vikna.
Mest lesið Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira