Erlent

Talibanar drepa flesta sakleysingja

Óli Tynes skrifar
Fórnarlamb stríðsins borið til grafar.
Fórnarlamb stríðsins borið til grafar.

Mannfall meðal óbreyttra borgara er hersveitum NATO í Afganistan mikið áhyggjuefni.

Yfirhershöfðingi bandamanna David Petraeus sagði á dögunum að hver óbreyttur borgari sem félli fyrir herjum þeirra væri ósigur.

Talibanar aftur á móti sækjast eftir að drepa sem allra flesta, til þess að auka á upplausn og óánægju.

Í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum segir að 76 prósent þeirra óbreyttu borgara sem hafa fallið eða særst hafi fallið fyrir talibönum.

Á fyrstu sex mánuðum þessa árs féllu tæplega þrettánhundruð sakleysingjar í stríðinu og tæplega tvöþúsund særðust. Það er þrjátíu og eins prósents aukning frá síðasta ári.

Samhliða því hefur mannfall einnig orðið meira bæði í herjum bandamanna og talibana.

Talibanar eru sagðir vera öflugri í landinu nú en nokkrusinni frá því innrásin var gerð í Afganistan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×