Innlent

Úrskurðar um varðhald í dag

Árásin átti sér stað í Hveragerði.
Árásin átti sér stað í Hveragerði.

Dómari í Héraðsdómi Suðurlands tók sér frest í gær til að taka afstöðu til kröfu lögreglustjórans á Selfossi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem réðst á unga konu í Hveragerði fyrir um það bil viku.  Búist er við ákvörðun dómara fyrir hádegi í dag.

Maðurinn, sem er á fertugsaldri, réðst inn á heimili fyrrverandi unnustu sinnar í Hveragerði og er sagður hafa gengið þar berserksgang. Hann er grunaður um að hafa veitt henni alvarlega höfuðáverka, þar á meðal með hnúajárni. Hnúajárnið fannst ásamt blóðugum vettlingum í bifreið mannsins. Lögreglan lýsti aðkomunni á vettvangi þannig að herbergið sem konan var í, hafi verið alblóðugt.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands segir að það sé ljóst af ummerkjum á vettvangi að um hrottafengna árás hafi verið að ræða. Þá hafi hending ein ráðið því að ekki hlaust mannsbani af árásinni.

Maðurinn var handtekinn við Rauðavatn. Þá var hann í blóðugri peysu.

Hann hafði áfrýjað fyrri gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms til Hæstaréttar sem staðfesti hann.

- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×