Innlent

Braggabúar voru stimplaðir

eggert þór bernharðsson
eggert þór bernharðsson
Þúsundir manna bjuggu í braggahverfum í Reykjavík í síðari heimsstyrjöld og fyrstu áratugina eftir stríð. Íbúar hverfanna sættu oft og tíðum neikvæðum viðbrögðum umhverfisins og voru stimplaðir af samfélaginu, eingöngu vegna búsetu sinnar.

Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur mun í hádeginu skoða þessa sögu og velta því fyrir sér hvernig þessi dómur sögunnar yfir braggabúum hefur birst og hvort breytingar hafi orðið á þessum viðhorfum á seinni árum. Fyrirlestur Eggerts, sem er á vegum Sagnfræðingafélagsins, verður í Þjóðminjasafninu og hefst klukkan 12.05.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×