Alþingi skipar sjö manna stjórnlaganefnd 2. júlí 2010 15:19 Njörður P. Njarðvík rithöfundur er á meðal þeirra sem skipaðir hafa verið í stjórnlaganefnd.
Alþingi hefur skipað sjö manna stjórnlaganefnd sem ætlað er að undirbúa þjóðfund um stjórnarskrármálefni. Þá er nefndinni ætlað að vinna úr upplýsingum sem safnast á þjóðfundinum og afhenda stjórnlagaþingi þegar það kemur saman að því er fram kemur í tilkynningu frá Alþingi. Auk þess skal nefndin annast „söfnun og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna og upplýsinga um stjórnarskrármálefni sem nýst geta stjórnlagaþingi og enn fremur leggja fram hugmyndir til stjórnlagaþings um breytingar á stjórnarskrá þegar það kemur saman." Einnig hefur forsætisnefnd Alþingis skipað þriggja manna undirbúningsnefnd stjórnlagaþings. Nefndinni er ætlað að undirbúa stofnun og starfsemi stjórnlagaþingsins ásamt undirbúningi fyrir þjóðfund. „Þá er undirbúningsnefndinni ætlað að undirbúa kynningu á starfsemi þingsins og setja upp vefsíðu þess, útvega húsnæði og undirbúa ráðningu starfsmanna þingsins. Einnig skal nefndin hefja gagnaöflun til undirbúnings fyrir tillögugerð stjórnlagaþings," segir í tilkynningunni. Stjórnlaganefndina skipa: Aðalheiður Ámundadóttir Ágúst Þór Árnason Björg Thorarensen Ellý K. Guðmundsdóttir Guðrún Pétursdóttir Njörður P. Njarðvík Skúli Magnússon. Undirbúningsnefnd stjórnlagaþings skipa: Þorsteinn Magnússon, formaður, aðstoðarskrifstofustjóri á Alþingi Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu Sigrún Benediktsdóttir hdl.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira