Ráðherra undirritar makrílreglugerð 31. mars 2010 16:59
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í dag undirritað reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. Í tilkynningu frá ráðuneytinu er tekið fram að ekki hafi náðst samkomulag við önnur strandríki um fyrirkomulag eða leyfilegt heildarmagn makrílveiða, og verða því leyfi til veiða á makríl einungis gefin út fyrir yfirstandandi ár. „Áhersla er lögð á að ekki megi reikna með að veiðarnar í ár skapi grunn að veiðirétti í framtíðinni eða að framtíðarfyrirkomulagi veiða að öðru leyti," segir ennfremur. „Á það er jafnframt bent að ekki liggur fyrir samfelld veiðireynsla í skilningi laga og að mikilvægt er fyrir þjóðarbúið að ekki sé lokað fyrir möguleika á að aflað sé enn fjölbreyttari reynslu í vinnslu og veiðum en fyrir liggur nú. Auk þess er hér vísað til þess að starfandi er vinnuhópur, skipaður af ráðherra, sem leggja á fram valkosti um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar á næstunni. Ekki er því ráðrúm til þeirra lagabreytinga nú, sem hugsanlega kann að vera þörf á, en endurmat mun fara fram að loknu þessu veiðitímabili. Fylgst verður vandlega með veiðum og vinnslu á makríl á komandi vertíð og reynslan lögð til grundvallar reglusetningu um þær á næstu árum." Þá er bent á að allar veiðar á makríl í fiskveiðilandhelgi Íslands og á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) verða háðar leyfum. „Ekki er verið að úthluta varanlegum heimildum til fleiri ára. Framsal verður óheimilt en tilflutningur milli skipa innan sömu útgerðar verður heimill. Reglugerðin kveður á um, að miðað verði við að ráðherra geti stöðvað makrílveiðar, þegar náð hefur verið 130 þúsund lesta afla." Ennfremur segir í tilkynningunni að með þessum reglum sé tekið tillit til alhliða hagsmuna og stuðlað að sem mestri og fjölbreyttastri verðmætasköpun og atvinnu fyrir þjóðarbúið í heild. „Íslendingar hafa enn litla reynslu af makrílveiðum og vinnslu. Því er sérstök ástæða til að skapa svigrúm fyrir nýjar veiðiaðferðir, sem líklegar eru til að skapa grundvöll fyrir fjölbreyttri vinnslu á verðmætum afurðum og auka atvinnu í sjávarbyggðum. Ennfremur þykir eðlilegt, vegna þess hve stutt er síðan farið var að veiða makríl hér í teljandi magni, að veita fleirum aðgang að veiðunum en þeim sem veitt hafa síðustu árin. Reglugerðin gerir þó ráð fyrir endurúthlutunum á vannýttum aflaheimildum þegar líður á veiðitímabilið til að unnt verði að veiða það magn sem heimilað er." Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, leggur mikla áherslu á að auka þann hluta makrílaflans, sem unninn er til manneldis, enda er það í samræmi við stefnu stjórnvalda og alþjóðleg sjónarmið um sjálfbærni. „Hann hyggst því einnig nýta nýja heimild í lögum um stjórn fiskveiða til að kveða á um vinnsluskyldu á tilteknu hlutfalli makrílaflans og gefa innan skamms út reglugerð þar að lútandi, þar sem jafnframt verði sett kvöð á skip um að færa í land allan afskurð sem fellur til við vinnslu makrílsins um borð í fullvinnsluskipum."
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Innlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Fleiri fréttir Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Sjá meira