Stjórnarflokkarnir vilja tryggja tök hins opinbera í orkufyrirtækjum 13. júlí 2010 18:34
Vilji er fyrir því innan stjórnarflokkanna að takmarka eignarhald einkaaðila í orkufyrirtækjum við þriðjungshlut. Unnið er að gagnaöflun í forsætisráðuneytinu vegna þess. Frumvarp um málið kynni að koma á haustiþingi. Það var rétt fyrir Alþingiskosningarnar 2007 að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, ákvað að selja fimmtán prósenta hlut ríkisins í hitaveitu suðurnesja. Geysir Green Energy, sem var að miklu leyti í eigu FL group, keypti hlutinn fyrir stórfé. Upp úr því fór í gang mikil hringgekkja með þeirri niðurstöðu að kanadíska félagið Magma Energy á nú HS orku, með nýtingarrétti á auðlindum til 65 ára. Þetta hefur lengi verið mjög umdeilt. Ríkisstjórnin hefur ákveðið, og verið er að vinna um það frumvarp, að hámarksnýtingartími verði 40-50 ár. Ríkisstjórnin vill tryggja eign þjóðarinnar á auðlindum landsins í stjórnarskrá. Þá áréttaði hún um miðjan maí, að í sinni tíð yrði ekki hróflað við orkukfyrirtækjum á hendi ríkisins. Þar má helst nefna Landsvirkjun. Bak við tjöldin er nú rætt um að setja lög um framtíðarskipan á eignarhaldi orkufyrirtækjanna. Þar er sérstaklega horft til norskra laga um að styrkja opinbert eignarhald. Einkaaðilar eigi ekki meira en þriðjung. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, og Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, nefndu þetta í grein á vefritinu Smugunni í vor. Þingmenn Samfylkingarinnar munu margir vera sáttir við að fara norsku leiðina. Enn fremur hefur fréttastofan heimildir fyrir því, að gagnaöflun sé hafin í forsætisráðuneytinu vegna hennar. Þó sé ekki byrjað að semja frumvarp. Vinstri-græn vilja vinda ofan af einkavæðingu HS orku. Fréttastofa hefur heyrt að þau vilji hafa ákvæði um nokkurra ára aðlögunartíma fyrir Magma til að þynna út hlut sinn í félaginu. Það hefur ekki fengist staðfest. Aftur á móti heyrist fréttastofu á Samfylkingarþingmönnum, að þar glími menn við orðinn hlut.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira