Innlent

Mikill skortur á dagforeldrum

Ólöf Lilja Sigurðardóttir ásamt börnunum Í nóvember og fram til áramóta var lítið sem ekkert að gera hjá dagforeldrum og margir þeirra hættu störfum. Nú er „allt vitlaust“ segir Ólöf en leikskólasvið segir eftirspurnina bundna við miðbæinn. 
fréttablaðið/arnþór
Ólöf Lilja Sigurðardóttir ásamt börnunum Í nóvember og fram til áramóta var lítið sem ekkert að gera hjá dagforeldrum og margir þeirra hættu störfum. Nú er „allt vitlaust“ segir Ólöf en leikskólasvið segir eftirspurnina bundna við miðbæinn. fréttablaðið/arnþór

Leikskólasvið hefur beint tilmælum til þjónustumiðstöðva í 101, 105 og 107 Reykjavík, það er Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum, um að finna dagforeldra til starfa.

Samkvæmt upplýsingum frá sviðinu eru alls sjötíu laus pláss í borginni, sem fækkar dag frá degi, en ekkert þeirra er í miðbænum.

„Ég skil vel að það sé erfitt fyrir foreldra í Vesturbæ að fara upp í Breiðholt eftir dagforeldrum og við höfum brugðist við þessari aukningu með því að biðja um að það sé haft samband við fyrrverandi dagforeldra og auglýst eftir þeim, til dæmis í hverfablöðum,“ segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri leikskólasviðs. Nokkur pláss séu laus í Laugardal, en þar þurfi líklega að auglýsa líka.

Engin miðlæg skrá heldur utan um hversu margir hafa sótt um dagvistun í þessum hverfum, og þar með hversu margir eru á biðlista, enda halda dagforeldrar sínar eigin skrár.

Síðastliðið haust var lítil spurn eftir lausum plássum hjá dagforeldrum í Reykjavík. Fullmannað var á leikskólum og metfjöldi barna komst inn á þá. Við þessar aðstæður fækkaði dagforeldrum. Ofan á bættist að um áramótin lækkuðu borgaryfirvöld svokallaða þjónustutryggingu, eða heimgreiðslur; fé til foreldra sem ekki fara með börn sín á leikskóla eða til dagforeldra.

„Og það hefur aldrei verið hringt jafn rosalega mikið og núna um áramótin, ekki síðan ég byrjaði fyrir níu árum,“ segir Ólöf Lilja Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Barnavistun, félagi dagforeldra.

Í áranna rás hafi ástandið alltaf verið erfiðara í miðbænum en í úthverfum: „En núna vantar alls staðar.“

Ólöf kveður heimgreiðslur hafa spillt mikið fyrir og verið lækkaðar of seint: „Ef þær hefðu ekki verið væru sennilega mun fleiri dagforeldrar að störfum í dag,“ segir Ólöf, sem efast um að dagforeldrarnir snúi aftur „þótt það sé allt vitlaust að gera“.

Ragnhildur Erla efast um að þessar greiðslur séu rót vandans. Á þenslutímum sé einfaldlega erfiðara að fá fólk á leikskólana. Þá sé eftirspurnin meiri hjá dagforeldrum, sem fjölgi.

klemens@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×