Innlent

Opið í Hlíðarfjalli og á Siglufirði

Fínt skíðafæri er nú sagt í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar og nægur snjór, enda allar snjóvélar keyrðar á fullu, að sögn ráðamanna þar. Þar var sjö stiga frost í morgun og lítilsháttar gola og það verður opið í Hlíðarfjalli til klukkan fjögur í dag. Skíðasvæðið á Siglufirði verður einnig opið í dag til klukkan fjögur. Þar er sagt logn og heiðskírt og 5 stiga frost, og færið er einnig sagt mjög gott, troðinn þurr snjór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×