Hvorki vopn né hermenn fylgja starfseminni 23. mars 2010 05:30 Bjarni Benediktsson vill taka með jákvæðu hugarfari á móti hugmyndum fyrirtækisins E.C.A. Mynd/GVA
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir fulla ástæðu til að taka hugmyndum hollenska fyrirtækisins E.C.A. Program með jákvæðu hugarfari. E.C.A. er einkarekið hernaðarfyrirtæki sem vill koma upp einkareknum flota vopnlausra orrustuþotna á Keflavíkurflugvelli. Bjarni segir að þverpólitískur stuðningur sé við áform E.C.A. á Suðurnesjum og unnið hafi verið að málinu í stjórnkerfinu. „Svo þegar reynir á stuðning frá ríkisstjórninni þá bregst hann eins og í svo mörgum öðrum málum. Það virðist vera sama hvaða hugmyndir fólkið á Suðurnesjum kemur með til uppbyggingar atvinnulífinu, alltaf er ríkisstjórnin á móti." Málið snúist um að nýta þá aðstöðu sem íslensk stjórnvöld tóku yfir við brottför varnarliðsins á því svæði landsins þar sem atvinnuleysi er nú mest. E.C.A. geti skapað yfir 200 störf fyrir flugvirkja og sérhæfða þekkingu sem tengist flugiðnaði. „Þessu fylgir mikil erlend fjárfesting," segir Bjarni. Það sé langt seilst að halda því fram að E.C.A sé „í hernaðarbrölti". Fyrirtækið veiti NATO-ríkjunum þá þjónustu að taka það að sér að vera andstæðingurinn á heræfingum. „Það fylgja starfseminni engin vopn og engir hermenn. Þess vegna finnst mér full ástæða til að taka hugmyndinni með jákvæðu hugarfari." „Við erum sjálf að reka hér Varnarmálastofnun sem rekur eftirlit með lofthelginni á Norður-Atlantshafi og kemur upplýsingum og merkjum til hinna NATO-ríkjanna. Með skapandi hugsun mætti segja að þar með værum við komin í hernaðarbrölt, sem við erum ekki, frekar en þetta félag." - pg
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira