Innlent

Steingrímur fékk ekkert veður af lögfræðiálitum

Steingrímur J. Sigfússon fékk ekkert veður af lögfræðiálitum sem bárust viðskiptaráðuneytinu á sínum tíma frá Seðlabankanum og lögmannsstofunni Lex. Álitin voru á þá leið að gengistrygging myntkörfulána væri ólögleg. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar þingmanns Sjálfstæðisflokks.

Sigurður sagði síðustu misseri hafa verið afar erfið fyrir „myntkörfufólkið". Enginn hafi hinsvegar fengið að vita af álitunum sem hefðu komið sér vel fyrir almenning í baráttunni við fjármálafyrirtækin og þótti Sigurði það ekki góð frammistaða af hálfu ríkisstjórnar sem talað hefði ítrekað um skjaldborg um heimilin.

Hann vildi því fá að vita hvort fjármálaráðherra hefði fengið veður af álitunum og innihaldi þeirra. Steingrímur sagði svarið einfalt, nei. Honum hefði ekki veið kunnugt um álitin þótt að sjálfsögðu hafi verið uppi umræða um lagalega óvissu myntkörfulána. Umrædd álit komu hins vegar ekki inn í fjármálaráðuneytið og fékk Steingrímur ekki veður af þeim fyrr en nokkru síðar.

Sigurði Kára sagði það þá koma sér verulega á óvart að fjármálaráðherra, sem á sama tíma stóð í því að stofna nýja banka í landinu hafi ekki verið upplýstur um málið. Því virðist algjört sambandsleysi hafa verið í ríkisstjórninni og talaði Sigurður Kári um afglöp, vanrækslu og svik sem ríkisstjórnin beri ábyrgð á. Að lokum spurði Sigurður Kári hvort málið kalli ekki á sérstaka rannsókn.

Steingrímur svaraði þá að nýju og sagði Sigurð Kára viðhafa stóryrði sem engin innistæða væri fyrir. Nær væri að spyrja hvernig á því hafi staðið að slík lánastarfsemi skuli hafa viðgengist í svo langan tíma án athugasemda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×