Kvartað vegna lána 6. janúar 2010 04:45 Hægt er að fá allt að 40 þúsund króna lán með því að skrá sig á netinu og senda SMS.
Nokkrar kvartanir hafa borist Neytendasamtökunum vegna svokallaðra SMS-lána sem hafa verið að ryðja sér til rúms hér á landi. Samtökin vilja að gripið verði til aðgerða gegn slíkum lánum hér á landi til að koma í veg fyrir frekari framgang þeirra. SMS-lánunum er einkum beint að ungu fólki. Fólk getur skráð sig á netinu og sent svo SMS-skeyti til að fá lán á bilinu 10 til 40 þúsund krónur. Greiða þarf lánin aftur innan fimmtán daga, og jafngilda vextirnir allt að 600 prósenta ársvöxtum, að því er fram kemur í bréfi Neytendasamtakanna til Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. „Neytendasamtökunum hafa þegar borist nokkrar kvartanir vegna þessara lána og innheimtu þeirra, en í öllum tilvikum hefur verið um að ræða lántaka sem af einhverjum ástæðum minna mega sín í samfélaginu,“ segir í bréfinu. Þar er bent á að svipuð lánastarfsemi hafi verið harðlega gagnrýnd í nágrannalöndunum, enda sé þeim einkum beint að ungu fólki sem hafi lítið milli handanna, auk þess sem vextirnir geti vart kallast annað en okurvextir. - bj
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Margrét fær ekki að áfrýja dómnum til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu Sjá meira