Innlent

Forsetahjónin sækja konunglega brúðkaupið

Mynd/Stefán Karlsson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff, forsetafrú, héldu í morgun til Stokkhólms þar sem þau munu taka þátt í hátíðarhöldum vegna brúðkaups Viktoríu krónprinsessu og Daniels Westling. Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning buðu forsetahjónunum að sækja brúðkaupið.

Í kvöld sitja forsetahjón og aðrir gestir kvöldverð sænsku ríkisstjórnarinnar en í kjölfar hans er boðið til hátíðartónleika í Tónlistarhúsi Stokkhólmsborgar.

Vígsluathöfnin verður á morgun og eftir hana er boðið til hátíðarkvöldverður í sænsku konungshöllinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×