Munaðarlaus börn á Haítí fengu ný tjöld 1. apríl 2010 04:00 Skjól Tjöldin fimm sem sett voru upp á Haítí munu hýsa fimmtíu munaðarlaus börn. Talið er öruggara að hafast við í tjöldum í ljósi þess hversu illa hús á svæðinu fóru í jarðskjálftanum.Mynd/Björgvin Barðdal „
Það var átakanleg sjón að sjá börnin, og auðvitað fær maður hnút í magann við að hugsa til baka,“ segir Björgvin Barðdal, framkvæmdastjóri Seglagerðarinnar Ægis. Björgvin kom heim í vikunni eftir vikuferð til Haítí, þar sem hann setti upp fimm tjöld sem hönnuð voru í Seglagerðinni. Tjöldin munu hýsa 50 börn sem ýmist eru munaðarlaus eða hafa ekki fundið fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir 12. janúar síðastliðinn. Börnin búa í búðum á vegum húmanista. „Ég er harður á því að það þarf fleiri tjöld á Haítí,“ segir Björgvin. Hann segir að hreinsunarstarf virðist víða varla hafið. Hann hafi til dæmis séð rústir barnaskóla þar sem vitað sé að um 250 börn liggi grafin og ekki sé byrjað að hreyfa við. Þau hús sem enn standi verði seint talin örugg, og því sé heppilegast, á meðan þetta skelfingarástand varir, að búa í tjöldum. Björgvin segir að þrátt fyrir hörmungarnar hafi fólkið sem hann hafi hitt verið glaðlegt, hreint og snyrtilegt. Neyðin er þó mikil í þessu fátæka landi, enda mikill hluti húsa óíbúðarhæfur, og stutt í fellibyljatímabilið. Tjöldin frá Seglagerðinni Ægi eru hönnuð sérstaklega fyrir erfiðar aðstæður og eiga að geta staðist hvers konar óveður, segir Björgvin. Fimm tjöld hrökkva þó skammt, því þúsundir tjalda þyrfti til að koma öllum íbúum sem misst hafa heimili sín í skjól. Tjöldin voru hönnuð og saumuð í Seglagerðinni Ægi að beiðni Félags húmanista, og greiddi Velferðarsjóður barna kostnaðinn. Rétt þótti að fá fagmann til að setja upp tjöldin, og ákvað Björgvin að slá til og fór við annan mann í sérstaka uppsetningarferð. Til að koma tjöldunum fimm til Haítí þurfti fyrst að senda þau til Dóminíska lýðveldisins, nágrannaríkis Haítí. Þangað flugu svo Íslendingarnir tveir og sóttu tjöldin. Til að forðast hnökra við tollafgreiðslu fengu þeir tollvörð frá Dóminíska lýðveldinu til að fara með sér yfir landamærin. „Þegar við fórum í gegnum höfuðborgina voru 70 til 80 prósent af húsunum hrunin,“ segir Björgvin. „Hreinsunarstarf gengur hægt, og maður fyllist vonleysi við að sjá hvernig ástandið er.“ Munaðarlaus Þrátt fyrir hörmungarnar virtust börnin á munaðarleysingjahælinu glöð og ánægð. Hundruð þúsunda barna voru munaðarlaus fyrir hörmungarnar í janúar og augljóst er að þeim fjölgaði gífurlega. Sérhönnuð tjöld Tjöldin sem send voru til Haítí voru hönnuð sérstaklega til að þola alls konar veður. Jónas Björnsson, starfsmaður Seglagerðarinnar Ægis, var annar starfsmanna fyrirtækisins sem fóru til Haítí til að setja tjöldin upp. Í rúst Flest hús í höfuðborg Haítí og nágrenni eru illa farin eða hrunin til grunna eftir jarðskjálftann. Víða hefur lítið verið gert til að hreinsa til. Þau hús sem enn standa uppi eru fæst talin örugg.
Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Fleiri fréttir Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Sjá meira