Eldgosið hægir á Eivöru Pálsdóttur 8. maí 2010 11:00 Eivör gefur út plötuna Larva á þriðjudaginn. Hún var tekin upp á tíu dögum í Danmörku.fréttablaðið/anton
Eivör Pálsdóttir heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni í lok maí. Eivör hefur ekkert heyrt í ævisöguritara sínum og er orðin pínulítið stressuð. „Ég hlakka mikið til að koma til Íslands. Ég er ekki búin að syngja mikið þar undanfarin ár og ég sakna Íslands voða mikið,“ segir færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir. Hún heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni 28. maí í tilefni af útkomu sjöttu hljóðversplötu sinnar, Larva, sem kemur í verslanir á þriðjudaginn. Eivör var föst á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli þegar Fréttablaðið ræddi við hana. Útgáfutónleikar hennar í Færeyjum verða haldnir á miðvikudaginn og vonaðist hún eftir að komast í flug sem fyrst til að geta undirbúið sig. Í Danmörku spilaði hún á ellefu tónleikum við góðar undirtektir en platan var tekin upp þar í landi. „Hún er miklu hrárri og er meira í átt að rokkmúsík og tilraunamennsku en ég hef verið að gera. Ég er að vinna með alls konar hljóðheima. Þetta eru aðeins meiri læti en fólk er vant að heyra frá mér,“ segir Eivör. „Ég fór í hljóðver í Danmörku í tíu daga með hljómsveitinni minni og tók upp alla plötuna „live“ í hljóðverinu. Ég vildi ná þessari hráu, „live“ stemningu á plötuna sem ég er rosalega ánægð með.“ Komið hefur fram í fjölmiðlum að tónlistarbloggarinn Jens Guð sé að skrifa ævisögu Eivarar. Hún kannast við málið en hefur ekkert heyrt í Jens vegna bókarinnar. „Eins lengi og maður má lesa þetta áður og vera með í þessu þá er þetta fínt. Ég er kannski pínulítið stressuð ef það kemur eitthvað út sem ég er ekki sátt við,“ segir hún. „Hann er búinn að tala við fólk sem þekkir mig en er ekki búinn að tala við mig.“ - fb
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira