Þýðing Lissabonsáttmálans hefst innan skamms 22. mars 2010 20:45 Mynd/Anton Brink
Áætlanir utanríkisráðuneytisins gera ráð fyrir að þýðing stofnsáttmála Evrópusambandsins og Lissabonsáttmálans hefjist á næstu vikum og verði lokið síðar á árinu. Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Lissabonsáttmálinn, sem saminn var í Lissabon árið 2007, tekur á ákvörðunarferli ESB, meðal annars í tengslum við stækkun þess. Sáttmálinn er einhverskonar stjórnarskrá sambandsins. „Líkt og fram kom við meðferð tillögu ríkisstjórnarinnar til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu er gert ráð fyrir að regluverk ESB verði þýtt yfir á íslenska tungu áður en til aðildar kemur," segir í svari Össurar. Þar segir ennfremur að í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar Alþingis um aðildarumsóknina sé fjallað um þetta. „Í álitinu er og vikið að áætluðum kostnaði almennt við þýðingar án þess að einstakir þættir þýðinga séu áætlaðir sérstaklega. Í samræmi við þetta hefur verið gert ráð fyrir auknum fjármunum til þýðingarmála í fjárlögum ársins 2010 í formi viðbótarframlags til Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins, alls 114 millj. kr." Þá segir í svari Össurar að gert sé ráð fyrir að þýðing regluverks ESB liggi fyrir við aðild að sambandinu. „Í áætlunum ráðuneytisins er miðað við að þýðing stofnsáttmála ESB og Lissabonsáttmálans hefjist á næstu vikum og verði lokið síðar á þessu ári."
Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent Kastrup lokað vegna drónaflugs Erlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Erlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Karli Helgasyni Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Sjá meira