Innlent

Þyrla flytur krana upp á Þríhnúkagíg

Stórhuga áhugamenn, sem vilja opna almenningi sýn inn í risahvelfingu í Bláfjöllum, fá tækifæri til mælinga í tengslum við gerð sjónvarpsþáttar.
Stórhuga áhugamenn, sem vilja opna almenningi sýn inn í risahvelfingu í Bláfjöllum, fá tækifæri til mælinga í tengslum við gerð sjónvarpsþáttar.

Íslenskt kvikmyndatökulið hyggst síga í risahellinn Þríhnúka­gíg í Bláfjöllum og mynda hellinn fyrir sjónvarpsþátt um eldsumbrot á Íslandi. Þátturinn er framleiddur fyrir sjónvarpsstöðina National Geographic.

Ætlunin er að nota þyrlu til að flytja bómukrana að gígopinu og skjóta bómunni yfir opið. Neðan í hana verður síðan fest karfa sem mannskapurinn sígur niður í.

Þríhnúkagígur í Bláfjöllum er talinn hafa myndast fyrir um eitt þúsund árum. Hellirinn er í raun gosrás, hátt í tvö hundruð metra djúpur og jafnvel dýpsti hraunhellir í heimi. Sérstakt félag er um verndun og nýtingu Þríhnúkagígs. Félagsmenn sjá fyrir sér að opna almenningi sýn í undraveröldina í hvelfingu gígsins með sérstökum göngum sem opnast eiga inn í hellisvegginn.

Liðsmenn úr Þríhnúkafélaginu verða í forgrunni þegar hellirinn verður myndaður. Sjálfir munu þeir nota tækifærið og framkvæma ýmsar mælingar sem á skortir. Um þessar mundir er félagið enn að afla um 60 milljóna króna til að hægt sé að meta umhverfisáhrif og hagræna þætti við að gera hellinn aðgengilegan almenningi.

Íslenska kvikmynda­fyrirtækið Profilm annast gerð þáttarins fyrir National Geographic. Anna Dís Ólafsdóttir framleiðslustjóri segir enn of snemmt að upplýsa nánar um verkefnið.

- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×