Sala tónlistar hefur hrunið síðustu ár 3. febrúar 2010 06:00 Gunnar Guðmundsson.
Sala á tónlist í Bandaríkjunum dróst saman um meira en helming milli áranna 1999 og 2009 samkvæmt nýjum tölum. Sama þróun hefur átt sér stað hér á landi. Í umfjöllun CNN Money.com kemur fram að í Bandaríkjunum hafi sala á tónlist farið úr því að vera 14,6 milljarðar dala (1.860 milljarðar króna) árið 1999 í að vera 6,3 milljarðar dala (tæpir 803 milljarðar króna) á síðasta ári. Hér eru ekki enn til tölur yfir tónlistarsölu í fyrra, en samkvæmt tölum Hagstofu Íslands er þróunin jafnvel enn ískyggilegri sé litið til tímabilsins frá 1998 til 2008. Árið 1998 seldist hér erlend tónlist fyrir 395 milljónir króna í heildsölu á verðlagi þess árs. Það jafngildir 716 milljónum króna á verðlagi ársins 2008, en þá seldist hins vegar erlend tónlist fyrir 165 milljónir króna. Samdrátturinn nemur 76 prósentum. Heildarsamdráttur er þó heldur minni, eða 54,1 prósent, þar sem sala á íslenskri tónlist hefur ekki dregist jafnmikið saman. „Geirinn er að laga sig að kröfum neytenda um hvernig, hvenær og hvar þeir hlusta á tónlist og við höfum átt við nokkra vaxtarverki að stríða í að hafa tekjur af þessum breytingum,“ hefur CNN Money eftir Joshua Friedman, varaforseta RIAA, samtaka tónlistarframleiðenda í Bandaríkjunum. Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda, segir algjört hrun hafa orðið í sölu á erlendri tónlist síðasta áratug. „Þannig að tölurnar styðja ekki fullyrðingar sem settar hafa verið fram um að niðurhal tónlistar á Netinu styðji við almenna tónlistarsölu,“ segir hann og bendir á að þar til fyrir fáum árum hafi hlutdeild erlendrar tónlistar verið í kringum 60 prósent á móti þeirri íslensku. „Núna er þetta hlutfall komið niður í 35 prósent.“ Gunnar segir vangaveltur um að ástæður hruns í sölu á erlendri tónlist sé að finna bæði í því hversu dýr tónlist sé orðin, en líklegra sé að þarna gæti að mestu áhrifa niðurhals af Netinu. Það endurspeglist líka í því að þótt margir virðist ekki hika við að hlaða niður erlendri tónlist þá kaupi menn frekar geisladiska með íslenskum tónlistarmönnum. Gunnar segir að sýna þurfi fólki fram á samhengi hlutanna. „Það verður engin tónlist til á Íslandi ef enginn er til í að borga tónlistarmönnunum.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira