Íslenskir menntaskólanemar sigra í alþjóðlegri olíuleitarkeppni 1. febrúar 2010 22:07 Sigurliðið sem heitir Puulsa er skipað þeim Jóhannesi Óðinssyni, Ottó Marvin Gunnarssyni og Sigfinni Björnssyni.
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu sigraði á dögunum í alþjóðlegu olíuleitarkepninni 2009 og er þetta annað árið í röð sem skólinn fer með sigur af hólmi í þessari keppni. Þegar keppninni lauk á laugardag stóð lið FAS uppi sem sigurvegari og þá höfðu strákarnir sem tóku þátt bæði fundið arðbærar olíulindir sem gáfu ágætlega af sér og eins náðu þeir að gera hagstæða viðskiptasamninga við önnur lið. Sigurliðið sem heitir Puulsa er skipað þeim Jóhannesi Óðinssyni, Ottó Marvin Gunnarssyni og Sigfinni Björnssyni. Um er að ræða svokallaðan námsleik sem heitir PetroChallenge og var hann spilaður í London um síðustu helgi og var það um leið úrslitakeppni í alþjóðlegu olíuleitarkeppninni árið 2009. „Leikurinn á uppruna sinn í Færeyjum og er tölvuleikur hannaður af þjálfunarfyrirtækinu Simprentis. Tilgangurinn er að kynna olíuvinnslu og möguleika á störfum tengdum þeim iðnaði fyrir nemendum á framhaldsskólaaldri. Þá þurfa nemendur að athuga kosti þess að mynda hlutafélag um olíuvinnsluna," segir í tilkynningu frá skólanum. Þá segir að leikurinn sé einnig notaður á námskeiðum hjá olíuleitarfyrirtækjum víða um heim. „PetroChallenge tölvuleikurinn hefur verið spilaður í framhaldsskólum í allmörgum löndum í nokkur ár og þrjú síðastliðin ár hefur farið fram lokakeppnin Oilsim International í London. Líkt og í fyrra var úrslitakeppnin haldin í Imperial College sem er 15.000 manna skóli og mjög virtur og eftirsóttur. Þessi skóli býður m.a. upp á nám tengt olíurannsóknum," segir ennfremur.' Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hefur tekið þátt í olíuleitinni á hverju ári frá 2003. Þetta var í annað sinn sem landskeppni er háð á Íslandi. Verðlaunin í landskeppninni eru ekki af verri endanum en þau eru þátttökuréttur í lokakeppninni, ferð til London og uppihald þar fyrir sigurliðið og fylgdarmann. Auk Íslendinga tóku þátt í keppninni lið frá Grænlandi, Færeyjum, Noregi, Danmörku og Skotlandi. Í undankeppni þessara landa höfðu 2256 nemendur í 83 skólum tekið þátt. Eftir nokkru er að slægjast fyrir sigurvegaranna því veitt eru peningaverðlaunin fyrir fyrsta sætið og verðlaunagripur úr kristal. Að því er fram kemur í tilkynningunni er keppnin styrkt af fyrirtækjum sem stunda rannsóknir eða vinnslu á olíu. „Má þar nefna fyrirtæki eins og Chevron Upstream Europe, Maersk Oil og Gas, North Sea Limited, OLF, Opito og DONG, Orkustofnun og Simprentis. Þá eru flugfélögin Atlantic Airways og British Airways styrktaraðilar að keppninni."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira