Mikil leynd hvílir yfir fundinum í Haag 28. janúar 2010 18:21
Fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Framsóknarflokksins eiga fund með bankamálaráðherra Bretlands og fjármálaráðherra Hollands í Haag í fyrramálið vegna Icesave deilunnar. Yfirlýsingar er að vænta að loknum fundi þeirra. Mikil leynd hvílir yfir fundinum sem ákveðinn var á fundi leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna og stjórnarflokkanna í Stjórnarráðinu í gær. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Bjarni Beneditksson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Frarmsóknarflokksins héldu utan til Hollandsí dag. Það mun vera krafa frá Bretum og Hollendingum að leynd hvíli yfir fundinum. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar munu þeir þremenningar hitta Paul Myners bankamálaráðherra Bretlands og Wouter Bos fjármálaráðherra Hollands. Fundinum var komið á fyrir milligöngu annað hvort útlends stjórnmálamanns eða erlendrar ríkisstjórnar eftir því sem fréttastofan kemst næst. Þá herma heimildir okkar að vænta megi yfirlýsingar að fundi loknum í Haag í Hollandi á morgun. Fjármálaráðherra og formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru ekki væntanlegir til Íslands fyrr en annað kvöld og verða því ekki á þingfundi þegar þing kemur saman á morgun. Athygli vekur að hvorki fulltrúi Samfylkingar né Hreyfingarinnar eru með í för, en heimildir fréttastofu herma að innan ríkisstjórnarinnar hafi verið talið nóg að fjármálaráðherra færi á fundinn fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira