Innlent

Fimm farþegar American Airlines þurftu aðhlynningu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fimm þurftu aðhlynningu eftir að vélin lenti. Mynd/ AFP.
Fimm þurftu aðhlynningu eftir að vélin lenti. Mynd/ AFP.
Hlúð var að fimm farþegum úr American Airlines flugvél eftir að hún lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir klukkan tvö í dag. Þeir voru ekki sendir á sjúkrahús, samkvæmt upplýsingum frá Friðþóri Eydal, upplýsingafulltrúa hjá Keflavíkurflugvelli.

Alls voru 145 manns í vélinni. Sjúkraflutningamenn voru í viðbragðsstöðu og kallaðar voru út björgunarsveitir af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu auk þess sem björgunarskip á sömu svæðum létu úr höfn.

Verið er að skoða vélina og kanna hvort einhverjar gufur hafi lekið úr henni.




Tengdar fréttir

Hættustig á Keflavíkurflugvelli vegna flugvélar

Hættustig er nú á Keflavíkurflugvelli vegna vélar sem er að lenda þar, samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjórn. Ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um málið en við segjum betur frá málinu eftir því sem fréttir berast.

Flugvélin lent í Keflavík

Flugvél frá American Airlines lenti á Keflavíkurflugvelli nú rétt fyrir klukkan tvö. Hættustigi var lýst yfir á flugvellinum vegna vélarinnar en fréttir bárust á því að farþegar í vélinni hefðu fundið fyrir eiturgufum og væru ringlaðir vegna þeirra. Átta sjúkrabílar voru sendir frá höfuðborgarsvæðinu til Keflavíkurflugvallar. Þremur þeirra var snúið við en fimm þeirra bíða nú frekari fyrirmæla um hvað gera skuli.

Átta sjúkrabifreiðar á leið til Keflavíkur

Átta sjúkrabifreiðar eru á leið frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins suður til Keflavíkurflugvallar vegna hættustigs sem hefur verið lýst yfir þar vegna flugvélar sem gert er ráð fyrir að lendi þar korter í tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×