Innlent

Meirihluti barna í Reykjavík ganga í skólann

Mynd/GVA
Þrjú af hverjum fjórum grunnskólabörnum í Reykjavíka ganga í skólann sinn. Önnur eru keyrð, hjóla eða ferðast með öðrum hætti. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun á leiðavali, öryggi og ferðamáta barna í skólann.

Könnunin verður gerð í flest öllum grunnskólum borgarinnar. Niðurstöður hennar verða notaðar til að taka ákvarðanir um úrbætur á gönguleiðum skólabarna og tryggja öryggi, að fram kemur á vef umhverfis og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar.

Þar segir að svokölluð vefsjá hafi verið sett upp á internetinu. Þar teiknuðu börnin sem tóku þátt í könnuninni leið sína í skólann á vefkort, skráðu ferðamáta, staði sem ekki voru öryggir og hvað var þar á seyði. „Er það of hraður akstur eða stoppa bílar ekki fyrir gangandi, vantar göngu- eða hjólastíg eða birtast bílar óvænt? Þessar upplýsingar, frá hverju og einu skólabarni, berast síðan Umhverfis- og samgöngusviði þar sem unnið er frekar úr þeim."

„Markmiðið er að gera hverfin öruggari og tryggja að börnin okkar geti komist um hverfin á öruggan hátt. Þau en ekki bílarnir eiga að hafa forgang," segir Gísli Marteinn Baldurssonn formaður umhverfis- og samgönguráðs.

„Helst er kvartað yfir of mikilli umferð, of miklum hraða og að ekki sé stoppað fyrir börnum til að hleypa þeim yfir götu," segir Kristinn J. Eysteinsson. tæknifræðingur hjá samgönguskrifstofu sviðsins, sem hefur umsjón með þessari könnun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×