Íslandsbanki vill of mikið fyrir olíufélag 22. janúar 2010 04:00 ein af verslunum skeljungs Talsverð endurskipulagning hefur átt sér stað innan veggja Skeljungs. Þar á meðal hefur mannlausum stöðvum verið fjölgað. Fréttablaðið/hörður
Verðhugmyndir Íslandsbanka á 49 prósenta hlut í Skeljungi þykja í hærri kantinum. Flestir þeirra sem Fréttablaðið hefur rætt við segja verðmiðhugmyndir bankans hljóða upp á tífaldan EBITDU-hagnað (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði). Þeir telja eðlilegra að greiða fjórfaldan EBITDU, eða á fjórða milljarð króna í mesta lagi. Aðrir telja ekki réttlætanlegt að greiða meira en fimm hundruð milljónir króna fyrir hlutinn miðað við slæma skuldastöðu Skeljungs og verð á sambærilegum félögum við núverandi aðstæður. Allt fari þetta eftir eiginfjárstöðu Skeljungs, sem var neikvæð um rúma 1,8 milljarða í lok árs 2008, og hvað kaupendur eru tilbúnir til að setja mikið af nýju fé í reksturinn. Þá er ekki vitað hvernig bankinn kemur til móts við væntanlegan kaupanda. Fréttablaðið greindi frá því í gær að þrír hafi lagt fram tilboð í Skeljung og eignir olíufélagsins. Það eru núverandi meirihlutaeigendur, Guðmundur Þórðarson, stjórnarformaður Skeljungs, Birgir Þór Bieltvedt og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, auk félags Guðbjargar Matthíasdóttur og sænska fyrirtækisins Atlantic Tank Storage. Um mánuður er þar til frestur rennur út til að leggja fram bindandi tilboð í hlut bankans. - jab
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira