Innlent

Fundi ólokið

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Fundi Flugstoða og samninganefndar flugumferðarstjóra sem hófst klukkan hálf tíu í morgun er ólokið, að sögn Ottós Garðars Eiríkssonar formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Ottó vonast til þess að samningsaðilar komist að sameiginlegri niðurstöðu á fundinum. Gerist það ekki hafa flugumferðarstjórar boðað til fjögurra klukkustunda verkfall í fyrramálið.

Flugumferðarstjórar lögðu niður vinnu á miðvikudaginn í síðustu viku. Til stóð að setja lögbann á aðgerðir þeirra fyrir helgi en til þess kom ekki þar sem verkfalli flugumferðarstjóra á föstudag og mánudag var aflýst og lýst var yfir vilja til þess að semja.




Tengdar fréttir

Fundað í dag vegna flugumferðastjóradeilu

Samningamenn flugumferðarstjóra og Flugstoða koma saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan hálft tíu í dag, eftir að samningafundurinn í gær skilaði ekki árangri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×