Fá að halda barninu þrátt fyrir grunsemdir um misþyrmingar 25. mars 2010 16:28
Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness um að móðir ungabarns og sambýlismaður hennar fái að hafa barnið á heimili sínu þrátt fyrir að lögreglan á Suðurnesjum rannsaki meint ofbeldi gegn barninu. Í dómi héraðsdóms kemur fram að móðir barnsins hafi farið með það í reglulegt ungbarnaeftirlit en þar vaknaði grunur um að barnið gæti verið með vatnshöfuð vegna hratt vaxandi höfuðmáls. Í kjölfarið var drengurinn skoðaður af barnalækni og taugasérfræðingi, sem leiddi til þess að drengurinn var lagður inn á Barnaspítala Hringsins í ágúst 2009. Eftir frekari rannsóknir á drengnum var talið að unnt væri að útiloka að sjúkdómar eins og vatnshöfuð eða blóðstorknunarsjúkdómur skýrðu þau einkenni sem drengurinn hafði. Talið var að umtalsverðar líkur væru á því að drengurinn hefði orðið fyrir ytri áverka, s.s. verið hristur eða fengið höfuðhögg. Barnið var því fjarlægt af heimili móður þess og sambýlismanni hennar og fært í tveggja mánaða fóstur en barnaverndaryfirvöld kröfðust þess að barnið yrði vistað þar í hálft ár til viðbótar. Lögreglan á Suðurnesjum lauk svo rannsókn málsins og tilkynntu að hún væri látin niður falla. Barnavernd kærði málið til ríkissaksóknara sem skipaði lögreglunni á Suðurnesjum að taka málið aftur upp. Því stendur rannsókn enn yfir og eru móðirin og sambýlismaðurinn grunuð um að hafa veitt barninu áverkana. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem Hæstiréttur staðfesti, kemur fram, að í ljósi þess að barnaverndareftirlitið sé með öflugt eftirlit með barninu og heimili þess, en það gera þau með reglulegum heimsóknum, þá sé hægt að tryggja barninu öryggi þó svo að foreldri og sambýlismaðurinn sæti lögreglurannsókn grunuð um að hafa misþyrmt barninu. Því féllst Héraðsdómur Reykjaness ekki á kröfu barnaverndar og Hæstiréttur staðfesti dóminn í dag. Barnið verður áfram á heimilinu.
Mest lesið Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Innlent Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Erlent Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Fréttir Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Innlent Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Innlent Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Sjá meira