Mörk Emils og Heiðars dugðu ekki liðum þeirra í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2010 17:45 Emil Hallfreðsson í landsleik. Mynd/AFP
Emil Hallfreðsson og Heiðar Helguson voru báðir á skotskónum í ensku b-deildinni í dag en það dugði þó ekki liðum þeirra því þau urðu bæði að sætta sig við 1-2 tap. Öll fimm Íslendingalið deildarinnar töpuðu sínum leikjum. Barnsley tapaði 1-2 á heimavelli fyrir Sheffield Wednesday. Barnsley lenti undir eftir aðeins þrjár mínútur en Emil Hallfreðsson jafnaði leikinn fjórum mínútum síðar. Sigurmark Sheffield kom síðan strax á 21. mínútu. Emil var tekinn útaf á 65. mínútu leiksins. Watford tapaði 1-2 á útivelli á móti Doncaster. Heiðar Helguson lék allan leikinn og minnkaði muninn á 90. mínútu leiksins. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék sinn fyrsta leik með Reading þegar liðið tapaði 1-2 á móti Nottingham Forrest. Ívar Ingimarsson var líka í byrjunarliðinu, Brynjar Björn Gunnarsson sat á bekknum allan tímann og Gylfi Þór Sigurðsson gat ekki leikið vegna meiðsla. Kári Árnason og félagar í Plymouth töpuðu 0-1 á heimavelli á móti Crystal Palace. Kári lék allan leikinn í vörninni. Aron Einar Gunnarsson kom á sem varamaður á 82. mínútu þegar Coventry tapaði 2-3 á útivelli á móti Ipswich. Coventry jafnaði leikinn eftir að Aron kom inn á völlinn en Ipswich náði að tryggja sér sigur í uppbótartíma.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Sjá meira