Málningarslettumaður tekinn 22. janúar 2010 06:00 Þetta er eitt þeirra húsa sem slett var málningu á. Mynd úr safni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á föstudagskvöld karlmann, sem grunaður er um að hafa skvett rauðri málningu á hús í eigu fyrrverandi bankastjóra Kaupþings, Hreiðars Más Sigurðssonar, aðfaranótt þess sama föstudags. Maðurinn sem um ræðir var í haldi lögreglu aðfaranótt laugardagsins, yfirheyrður daginn eftir og sleppt. Lögregla gerði húsleit á heimili hans, að fengnum dómsúrskurði. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var þar lagt hald á tölvur, myndavélar og minniskubba. Eitthvað mun hafa fundist af málningu hjá manninum. Hann er á fimmtugsaldri og hefur komið við sögu lögreglu áður. Rannsóknin beinist meðal annars að því hvort maðurinn hafi slett á hús fleiri auðkýfinga, en á því hefur gengið frá því í sumar. Auk húss Hreiðars Más hefur málningu verið slett á húseignir Björgólfs Thors Björgólfssonar, Sigurðar Einarssonar og Hannesar Smárasonar, svo dæmi séu nefnd. Skemmdarvargur undir heitinu Skap Ofsi sendi á dögunum Youtube-myndband sem sýnir öll þau skemmdarverk sem hann hefur unnið frá því eftir hrun. - jss
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Fleiri fréttir Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Sjá meira