Innlent

Íslendingunum var aldrei ógnað, fengu bara þakklæti

Íslenska rústabjörgunarsveitin mætti aðeins þakklæti og vinsemd frá íbúum Haiti og var aldrei ógnað þá viku sem hún var að störfum á hamfarasvæðinu. Meðlimir hennar fengu innilegar mótttökur við komuna til Íslands í nótt.

Flugvélin lenti um tvöleyti í nótt á Keflavíkurflugvelli og fór inn í skýli á varnarsvæðinu þar sem búnaður hennar er geymdur en þar biðu nánustu aðstandendur sem og utanríkisráðherra, sem fyrir hönd ríkisstjórnarinnar þakkaði sveitinni fyrir frábær störf.

Ráðherrann ákvað að sleppa öllum ræðuhöldum enda hópurinn þreyttur og áfjáður í að sameinast fjölskyldum sínum eftir níu daga úthald. Og móttökurnar voru hlýjar og innilega. Þetta var fyrsta rústabjörgunarsveitin sem komst á vettvang eftir jarðskjálftann mikla og hjá þeim stendur fyrsti sólarhringurinn upp úr, þegar tókst að bjarga þremur konum.

Herflugvélar, herskip, herþyrlur og vopnaðir hermenn eru mjög áberandi í og við höfuðborg Haiti og gríðarleg áhersla lögð á að tryggja röð og reglu og þann skamma tíma sem við stöldruðum þarna við sýndist okkur meira streyma inn af hermönnum heldur en óbreyttum hjálparstarfsmönnum.

Ástandinu á götum Port-au-Prince hefur verið líkt við stríðsvettvang en Íslendingunum mætti aðeins vinsemd og þakklæti, og þeim stóð aldrei nein ógn af því hrjáða fólki sem þar býr, að sögn Gísla Rafns Ólafssonar, stjórnanda Alþjóðabjörgunarsveitarinnar. Þeir fengu þannig allt aðra mynd en þá sem lýst hefur verið í heimsfjölmiðlunum um óróa og að verið væri að ráðast á einhverja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×