Innlent

Hafró: Vélstjórar boða til vinnustöðvunar

Boðað hefur verið til vinnustöðvunar vélstjóra á skipum Hafrannsóknarstofnunar. Kjarasamningur vegna starfa vélstjóra á skipum stofnunarinnar rann út þann 31. mars 2009 og í samningaviðræðum hafa viðsemjendur Félags vélstjóra og málmtæknimanna ekki verið til viðræðu um leiðréttingu á grunnlaunum vélstjóra á skipum Hafró.

Félagið hefur því boðað til tímabundinnar vinnustöðvunar á skipum Hafrannsóknarstofnunar dagana 3. til og með 10. september næstkomandi. Ef samningar hafa ekki náðst fyrir 24. september, hefst ótímabundin vinnustöðvun frá og með 25. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×