Utanlandsferðum fækkar 16. febrúar 2010 03:00 tjaldstæði á Akureyri Meirihluti þjóðarinnar ferðast um landið og utanlandsferðum fækkar á sama tíma. fréttablaðið/vilhelm fréttablaðið/vilhelm
Níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands á síðasta ári, samkvæmt nýrri könnun Ferðamálastofu. Þetta er hærra hlutfall en fyrri kannanir hafa sýnt. Í könnuninni kemur fram að tveir af hverjum fimm ferðuðust bæði innanlands og utan og fjögur prósent eingöngu utanlands. Átta prósent ferðuðust hins vegar ekki neitt. Innan við helmingur landsmanna ferðaðist til útlanda sem gefur til kynna verulegan samdrátt í utanlandsferðum landsmanna. Tveir af hverjum þremur fóru í þrjár eða fleiri ferðir innanlands og þrír af hverjum fjórum gistu sjö nætur eða lengur, en á heildina litið gistu landsmenn að jafnaði 14,3 nætur á ferðalögum innanlands árið 2009. Flestir ferðuðust í júlí og ágúst. Sú gistiaðstaða sem var nýtt í hvað mestum mæli, eða af ríflega helmingi landsmanna, var gisting í tjaldi, fellihýsi eða húsbíl en auk þess gistu fjölmargir, eða tæpur helmingur, hjá vinum og ættingjum. Norður- og Suðurland eru þeir landshlutar sem eru vinsælastir. Af þeirri afþreyingu sem greiða þarf fyrir nýttu flestir sér sund eða jarðböð en auk hennar borguðu fjölmargir sig inn á söfn og sýningar, fyrir veiði og leikhús eða tónleika. - shá
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira