Innlent

Klám er til sölu í vefgátt Vodafone

Farsímar og sumar leikjatölvur eru þannig úr garði gerðar að hægt er að vafra um internetið. Framleiðendur klámefnis hafa leitað samninga við íslensk fjarskiptafélög um sölu á slíku efni í farsíma.
Farsímar og sumar leikjatölvur eru þannig úr garði gerðar að hægt er að vafra um internetið. Framleiðendur klámefnis hafa leitað samninga við íslensk fjarskiptafélög um sölu á slíku efni í farsíma.
Upplýsingatækni Í farsímavefgáttinni Vodafone Live er að finna klám til sölu. Af stóru farsímafélögunum er Vodafone enn sem komið er eitt um að bjóða slíkt efni. Öll bjóða félögin hins vegar upp á tengingu við internetið og hvaðeina sem þar er að finna.

Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone á Íslandi, segir fyrirtækið selja aðgang að ýmsu efni á Netinu og efni af erótískum toga sé þar á meðal.

„Auðvitað er þetta ekki okkar efni heldur aðgangur að vefsíðum úti í heimi, á sama hátt og seldur hefur verið aðgangur að tónlist og öðru,“ segir hann. Vodafone á Íslandi gæti hins vegar að því eftir megni að börn komist ekki í óæskilegt efni. Í því skyni hafi verið komið upp aðgangsstýringu sem felist í að stuðst sé við kennitölu notenda. „En eins og allir vita þá kemstu á Netið í símanum þínum og þar er alls konar hluti að finna. Síminn er bara ein af mörgum leiðum á Netið,“ segir hann og kveður reyna á ábyrgð aðstandenda barna að halda þeim frá óæskilegu efni.

„En í þessu tilviki förum við þá leið að láta kerfið sannreyna það hvort skráður notandi númersins sé orðinn átján ára. Ef svo er ekki þá birtist ekki einu sinni þetta efni.“ Þá áréttar Hrannar að efninu sé á engan hátt haldið að fólki. „Það þarf að hafa fyrir því að finna þetta og veita samþykki sitt á mörgum stöðum í ferlinu til að komast í efnið. Ég held því að utan um þetta sé girt eins vel og hægt er.“

Hjá Símanum fengust þær upplýsingar að ekki sé seldur aðgangur að klámefni á vef fyrirtækisins. Sömu sögu er að segja hjá farsímafyrirtækinu Nova. Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir þónokkra hafa haft samband við fyrirtækið og haft áhuga á samstarfi um að bjóða klámefni til sölu. „Og við höfum bara verið að skoða það án þess að endanleg ákvörðun hafi verið tekin. En eins og er þá bjóðum við ekki upp á þetta,“ segir hún.

Guðberg K. Jónsson, verkefnisstjóri SAFT, átaks um örugga netnotkun ungmenna, undrast að Vodafone bjóði klámefni. „Það væri algjörlega gegn stefnu Samtaka evrópskra netþjónustuaðila og viðleitni stóru fjarskiptafélaganna hér á Íslandi til að bregðast við óæskilegu efni,“ segir hann og kveður brýnt að aðstandendur barna haldi vöku sinni á sem flestum sviðum þegar kemur að óæskilegu efni á Netinu. Hann segir enga úttekt hafa verið á því gerða hvað velja þurfi marga hlekki til að komast frá vefjum fjarskiptafélaganna yfir á óæskilega vefi.

olikr@frettabladid.is
Hrannar Pétursson
Liv Bergþórsdóttir


Guðberg K. Jónsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×